Landspítalinn - Blaðamannafundur

Landspítalinn - Blaðamannafundur

Kaupa Í körfu

Bráðamóttöku á Hringbraut verður lokað um helgar MAGNÚS Pétursson, forstjóri Landspítala - háskólasjúkrahúss (LSH), sagði á blaðamannafundi í gær að sparnaðaraðgerðir spítalans, sem nú liggja fyrir, myndu draga úr öryggi þjónustunnar. "Enn frekari fækkun vakta hinna ýmsu starfshópa og deilda dregur úr öryggi þjónustunnar. Fyrir getur komið að ekki verði í öllum tilfellum hægt að ná í mjög sérhæfða þjónustu í bráðatilfellum," segir hann m.a. í greinargerð sem hann lagði fram á fundinum. MYNDATEXTI: Sparnaðaraðgerðir LSH kynntar á blaðamannafundi: Á myndinnu eru m.a. Ingólfur Þórisson, Jóhannes M. Gunnarsson, Gísli Einarsson, Anna Lilja Gunnarsddóttir, Erna Einarsdóttir og Oddur Gunnarsson.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar