Sorpa í Kópavogi

Þorkell Þorkelsson

Sorpa í Kópavogi

Kaupa Í körfu

Skissa Pétur Blöndal fékk kaffisopa í Sorpu. Alls staðar er íþróttaálfurinn. Það er búið að setja upp auglýsingaskilti á starfsmannaskúrinn í Sorpu á Dalvegi með mynd af honum og áletruninni "Gott efni í nýja hetju". Auglýsingin skírskotar til pappakassa sem skilað er til Sorpu og notaðir eru í aðra pappakassa. Það er herferð í gangi. Á öðru skilti er áletrunin "Þeir ganga aftur" um skó sem skilað er til Sorpu. Það rignir og skammdegið er búið að gleypa mannlífið eins og rusladallur, þannig að blaðamaður freistast til að setjast með starfsmönnunum í hlýjuna í skúrnum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar