Júdó unglinga

Stefán Stefánsson

Júdó unglinga

Kaupa Í körfu

Nokkuð reyndi á þolinmæði krakka í Júdófélagi Reykjavíkur og Ármanns þegar þeir gengu fylktu liði inn í æfingasali sína enda mikið lagt upp úr aga - fyrst varð að vera í fallegri röð, hneigja sig fyrir kennara og meistara íþróttarinnar en síðan var tekið til við að tuskast og gera skemmtilegar æfingar. Myndatexti: Ber er hver að baki nema sér bróður eigi, eða systur. Systkinin Tara Mist, 7 ára, og Aron Vikar, 9 ára, Eiríksbörn æfa bæði með Júdófélagi Reykjavíkur. Þau litu til hvort með öðru, ef annað varð fyrir hnjaski var hitt fljótt á vettvang.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar