Sviðakjammi

Atli Vigfússon

Sviðakjammi

Kaupa Í körfu

"AFI minn segir að það eigi að gera svona," sagði Gunnsteinn Sæþórsson og fékk sér væna flís af kjammanum sem hann sagði að væri góður á bragðið, á þorrablóti leikskólans í Aðaldal, en mikið var um dýrðir hjá börnum og starfsfólki þegar slegið var upp hátíð með hangikjöti, harðfiski, heilmiklum súrmat, rófustöppu, soðnu brauði, sviðum o.m.fl. Þetta var tilbreyting í skólastarfinu enda var mikið sungið af lögum sem tilheyra þorranum og allir báru pappakórónur í tilefni dagsins. Ekki var að sjá annað en að allir kynnu vel að meta matinn því margir settu vel á diskana.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar