Stjórn Myndlistarfélags Árnessýslu

Kári Jónsson

Stjórn Myndlistarfélags Árnessýslu

Kaupa Í körfu

Ný stjórn var kjörin á aðalfundi Myndlistarfélags Árnessýslu sem haldinn var í Listasafni Árnesinga í Hveragerði um helgina. Kristján Finnsson var kjörinn formaður í stað Kára Jónssonar og Kristín Konráðsdóttir var kjörin gjaldkeri í stað Ellisifjar Bjarnadóttur. Í skýrslu stjórnar kom fram að námskeiðahald hefði legið niðri allt síðasta ár vegna húsnæðisleysis og fjárskorts en félagið hélt þó tvær sýningar á árinu. Fyrir dyrum stendur að halda olíumálunarnámskeið sem haldið verður á tíu laugardögum fram til vors og mun kennslan fara fram í vinnustofu Listasafnsins í Hveragerði.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar