Varúð, hreindýr

Jón Sigurðarson

Varúð, hreindýr

Kaupa Í körfu

Merki sem vara við hreindýrum eru komin upp á Háreksstaðaleið og ekki vanþörf á. Búið er að keyra á á annan tug hreindýra í vetur. Flughálka er á leiðinni milli Egilsstaða og Akureyrar, en svell er yfir öllum veginum. Vert er að vara við snjógöngum sem eru komin á nokkrum stöðum á Mývatnsöræfum en vegurinn er snjólaus nema í göngunum en þar skefur og getur verið þæfingur á þessum stuttu köflum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar