Fulltrúar stéttarfélaga á fundi í Stjórnarráðinu

Þorkell Þorkelsson

Fulltrúar stéttarfélaga á fundi í Stjórnarráðinu

Kaupa Í körfu

Ræddu við ráðherra um sparnaðaraðgerðir á Landspítala AÐSTANDENDUR fundarins í Austurbæ í síðustu viku um málefni Landspítalans áttu í gær fund með Davíð Oddssyni forsætisráðherra og Jóni Kristjánssyni heilbrigðisráðherra í Stjórnarráðinu þar sem þeim var afhent ályktun fundarins. Í ályktuninni var m.a. skorað á stjórnvöld að endurskoða fjárveitingar til spítalans en að fundi loknum sögðu ráðherrarnir við fréttamenn að það stæði ekki til. MYNDATEXTI: Fulltrúar samtaka sjúklinga og heilbrigðisstarfsmanna gengu á fund Davíðs Oddssonar og Jóns Kristjánssonar.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar