Arnarfellssystkin - Sigurbergur, Sigríður og Þór

Steinunn Ásmundsdóttir

Arnarfellssystkin - Sigurbergur, Sigríður og Þór

Kaupa Í körfu

Það eru fjórir bræður úr Skagafirðinum og foreldrar þeirra sem eiga verktakafyrirtækið Arnarfell ehf. Því vex stöðugt fiskur um hrygg og verkefnin verða stærri og umfangsmeiri eftir því sem tímar líða. Konráð Vilhjálmsson stofnaði fyrirtækið á sínum tíma, eftir að hafa um árabil stundað vélavinnu og nú er þrjú börn hans starfandi við Kárahnjúkavirkjun; þau Sigurbergur, sem er staðarstjóri Arnarfells, Sigríður Pála, en hún sér um skrifstofuhald, og Þór annast steypustöð fyrirtækisins á virkjunarstað. Yngsti bróðirinn, Þorvaldur, vann með þeim sl. sumar, en er nú í Tækniskólanum. MYNDAETXTI: Bræðurnir Sigurbergur og Þór, eigendur verktakafyrirtækisins Arnarfells ehf. og systir þeirra, Sigríður Pála, starfa við Kárahnjúkavirkjun með Impregilo S.p.A. Sigurbergur er staðarstjóri Arnarfells á virkjunarstað, Sigríður Pála hefur með pappíra að gera og Þór sér um steypustöðina ásamt fleiru.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar