Við steypustöð - Gunnar og Þór

Steinunn Ásmundsdóttir

Við steypustöð - Gunnar og Þór

Kaupa Í körfu

Það eru fjórir bræður úr Skagafirðinum og foreldrar þeirra sem eiga verktakafyrirtækið Arnarfell ehf. Því vex stöðugt fiskur um hrygg og verkefnin verða stærri og umfangsmeiri eftir því sem tímar líða. Konráð Vilhjálmsson stofnaði fyrirtækið á sínum tíma, eftir að hafa um árabil stundað vélavinnu og nú er þrjú börn hans starfandi við Kárahnjúkavirkjun; þau Sigurbergur, sem er staðarstjóri Arnarfells, Sigríður Pála, en hún sér um skrifstofuhald, og Þór annast steypustöð fyrirtækisins á virkjunarstað. Yngsti bróðirinn, Þorvaldur, vann með þeim sl. sumar, en er nú í Tækniskólanum. MYNDAETXTI: Gunnar Sveinbjörnsson og Þór Konráðsson við Steypustöð Arnarfells á virkjunarsvæðinu. Þeir segja stöðina framleiða allt að 25 rúmmetrum af steypu á klukkustund og fjóra til sjö menn vinna þar að staðaldri.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar