Ný verslunarmiðstöð

Margret Ísaksdóttir

Ný verslunarmiðstöð

Kaupa Í körfu

Í Hveragerði er að rísa verslunarmiðstöð sem áætlað er að verði fullbúin í júní. Vegna jarðsprungu sem fannst þegar verið var að vinna að grunni hússins var afráðið að breyta teikningum. Samkvæmt þeim teikningum sem átti að byggja eftir var húsið þrjár hæðir, en þegar sprungan fannst var ákveðið að allt yrði á einni hæð. Europris hefur ákveðið að opna verslun í húsinu, bæjarskrifstofur og bæjarbókasafnið flytjast einnig í nýja húsið og ýmislegt fleira er í deiglunni.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar