Jónsi Jósep Snæbjörnsson

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Jónsi Jósep Snæbjörnsson

Kaupa Í körfu

FRAMLAG Íslands til Evróvisjón, söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, hefur verið valið. Lagið heitir "Heaven" og er eftir Svein Rúnar Sigurðsson en textinn er eftir Magnús Þór Sigmundsson. Jón Jósep Snæbjörnsson, betur þekktur sem Jónsi, söngvari hljómsveitarinnar Í svörtum fötum, mun flytja lagið en keppnin verður haldin í Istanbúl í Tyrklandi. Lagið var valið úr yfir hundrað lögum af sérstakri valnefnd sem skipuð hafði verið af Ríkisútvarpinu. Útsetninguna annast Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson og Vignir Snær í Írafári og það verður opinberað í byrjun mars. MYNDATEXTI: Vinsælasti söngvari landsins, samkvæmt Hlustendaverðlaunum FM957, Jónsi, flytur Evróvisjónlagið okkar í ár.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar