FOOD & FUN - Árni, Sigurður, Guðni og Siggi

©Sverrir Vilhelmsson

FOOD & FUN - Árni, Sigurður, Guðni og Siggi

Kaupa Í körfu

FOOD & FUN hátíðin var sett í þriðja sinn í gær á Nordica hótelinu. Tólf listakokkar, jafnmargir frá Evrópu og Bandaríkjunum, komu til landsins í gærmorgun og verða hér fram á sunnudag í tengslum við hátíðina. Um fimmtíu blaðamenn eru væntanlegir til landsins. Hátíðin nær hámarki á laugardag þegar kokkarnir safnast saman í Smáralind og keppa sín á milli í matargerð úr íslensku hráefni. MYNDATEXTI: Árni M. Mathiesen, Sigurður Helgason, forstjóri Flugleiða, Guðni Ágústsson og Siggi Hall klæddust kokkafötum þegar Food & Fun-hátíðin var sett í gær. Hátíðin er haldin í þriðja sinn og stendur til sunnudagsins 22. febrúar.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar