Jeff Tunks. - Food & Fun-keppnin

©Sverrir Vilhelmsson

Jeff Tunks. - Food & Fun-keppnin

Kaupa Í körfu

EINN þeirra listakokka sem sitja í dómnefnd Food & Fun-keppninnar er Jeff Tunks. Hann rekur þrjá veitingastaði í Washington DC í Bandaríkjunum og er hér á landi í þriðja sinn. "Ég keppti í fyrra á Food & Fun, var þá gestakokkur á Apótekinu, og kom hingað til Íslands í réttir í september fyrir nokkrum árum. Þessi hátíð er gott tækifæri fyrir okkur kokkana að kynnast hver öðrum og matargerð ólíkra landa. Svo er þetta auðvitað góð kynning fyrir íslenskar afurðir. Þegar ég var hér á síðast ári fengum við að sjá heilmargt, fórum t.d. í mjólkurverksmiðju þar sem skyrið og fleira er búið til."

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar