Valur - Fram 27:24

Sverrir Vilhelmsson

Valur - Fram 27:24

Kaupa Í körfu

EGIDIJUS Petkevicius markvörður Fram og Hjalti Þór Pálmason Valsmaður voru þeir einu sem voru ekki í meðalmennskunni er Valur lagði Fram í RE/MAX-deild karla, úrvalsdeild, í gær, 27:24, en jafnt var á komið með liðunum í hálfleik, 13:13. Valsmenn eru í efsta sæti með 13 stig að loknum 4 umferðum en grannalið þeirra úr Safamýri, Fram, er þessa stundina í 6. sæti með 8 stig. MYNDATEXTI: Lok, lok og læs! Stefán Baldvin Stefánsson, hornamaður Fram, kemst hér lítt áleiðis gegn varnarmönnunum Heimi Árnasyni og Brendan Þorvaldssyni, sem stóðu vaktina að þessu sinni.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar