Golfæfingar

Kristján Kristjánsson

Golfæfingar

Kaupa Í körfu

Hallgrímur Arason, veitingamaður og ákafur golfspilari, gerði sér lítið fyrir í gærdag og setti 19. holuna upp á flöt skammt neðan við Bautann. "Maður verður að vera góður í stutta spilinu í sumar," sagði hann þar sem hann æfði af kappi. Snjórinn er sem óðast að hverfa úr bænum og veðrið lék við bæjarbúa í gær. Það má því segja að vorfiðringur hafi gripið um sig og þeir sem tök höfðu á nýttu daginn til útiveru. Líkt og Hallgrímur, sem greinilega ætlar að mæta vel undirbúinn á Jaðarsvöll þegar golftíð hefst.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar