Aðalsteinn Guðmundsson

Aðalsteinn Guðmundsson

Kaupa Í körfu

Aðalsteinn Guðmundsson er fæddur 1976 í Kópavogi. Hann flutti fimm ára í vesturbæ Reykjavíkur og gekk í Melaskóla, Hagaskóla og Menntaskólann við Hamrahlíð. "Ég er að klára tölvunarfræði við Háskóla Íslands," segir hann, "en ég ætla að sjá til hvort ég fer að vinna við það í framtíðinni, því ég hef meiri áhuga á tónlist." "Ég hef búið til tölvutónlist frá því ég var 13 ára. Ég kunni ekki neitt fyrst, en hélt alltaf áfram að prófa," segir hann og segist m.a. hafa unnið tónlistarkeppni í MH tvisvar og gefið út þó nokkuð af danstónlist á vínyl undir ýmsum nöfnum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar