Landsbankinn gefur golfsett

Landsbankinn gefur golfsett

Kaupa Í körfu

Í tilefni af því að 40 ár eru liðin frá því Landsbankinn og undanfari hans Samvinnubankinn stofnuðu útibú í Grundarfirði var viðskiptavinum boðið í kaffi og marsipantertu sl. föstudag. Í tilefni þessara tímamóta færði afmælisbarnið grunnskólanum og Golfklúbbnum Vestari sameiginlega barna- og unglingagolfsett til eflingar golfíþróttinni. Morgunblaðið/Gunnar Kristjánsson MYNDATEXTI: Frá afhendingu gjafarinnar. F.v.: Páll Guðmundsson frá golfklúbbnum Vestarr, Ólöf Hildur Jónsdóttir, skrifstofustjóri Landsbankans í Grundarfirði, og Anna Bergsdóttir, skólastjóri Grunnskólans. Fyrir framan þau halda á kylfum tilvonandi kylfingar, Samúel Pétur og Sigurbjörg Sandra.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar