Bjarney Sonja Ólafsdóttir

Þorkell Þorkelsson

Bjarney Sonja Ólafsdóttir

Kaupa Í körfu

Fær hamingjuóskir í viku Bjarney Sonja Ólafsdóttir, Baddý, eins og hún er kölluð, er 24 ára í dag, 6 ára samkvæmt almanakinu. "Ég hef haldið upp á afmælisdaginn þegar mér hentar, oft í kringum helgi. Fólk man venjulega eftir afmælisdeginum mínum og óskar mér til hamingju alla vikuna á eftir, sem er mjög gaman." Hátíðisdagur þeirra sem fæddir eru á hlaupári Þegar Baddý var lítil var mottóið hennar að "allir aðrir ættu afmæli degi seinna". "Þannig að ég átti afmæli 1. mars og það var minn dagur," segir hún með stolti enda viðurkennir hún fúslega að það sé gaman að eiga afmæli þennan dag. Fleiri muni eftir deginum og eftir afmælisgjöfum. Baddý útskrifaðist út tölvunarfræði við Háskólann í Reykjavík í fyrra og í hennar árgangi var annar nemandi fæddur hinn tuttugasta og níunda. Í Verzlunarskólanum, sem hún stundaði nám í á undan, voru þrír sem áttu sama afmælisdag, og annar í grunnskóla og einnig góð vinkona hennar og frændi. "Við höfum ekki gert neitt af því að hittast reglulega en ég man að það var sérstaklega gaman þegar við héldum þrjú sem vorum í Versló upp á "fimm ára" afmælið okkar." MYNDATEXTI: Bjarney Sonja Ólafsdóttir

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar