EDI-bikarinn

Jim Smart

EDI-bikarinn

Kaupa Í körfu

VALGERÐUR Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, afhenti á föstudag Ásgeiri Jónssyni, vörustjóra Ölgerðar Egils Skallagrímssonar hf., EDI-bikarinn, verðlaun ICEPRO, samstarfs um rafræn viðskipti, til handa þeim sem þykja skara fram úr í rafrænum viðskiptum. Í rökstuðningi dómnefndar segir að Ölgerðin hafi lagt mikinn metnað í upplýsingatæknimál og rafræn viðskipti þar sem viðurkenndir staðlar og samræmdar viðmiðanir eru lagðar til grundvallar. Ölgerðin innleiddi nýverið ebXML-samskipti vegna viðskipta við Vöruhótelið ehf. sem tók við öllu birgðahaldi fyrir Ölgerðina vorið 2003 og hefur síðan afgreitt yfir 10 milljón pakkningar. Er það álit dómnefndar að hér sé stigið framfaraspor sem vakið hafi athygli og setji mark sitt á þróun og framfarir á sviði rafrænna viðskipta á Íslandi.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar