Ballettdanskeppni í Borgarleikhúsinu

Ballettdanskeppni í Borgarleikhúsinu

Kaupa Í körfu

ÞRJÁR stúlkur báru sigur úr býtum í keppni í listdansi sem fram fór í Borgarleikhúsinu á þriðjudag, en þar kepptu efnilegustu ballettdansarar Íslands af yngstu kynslóðinni um þátttökurétt í fjölþjóðlegri keppni. Stúlkurnar, þær Sæunn Ýr Marinósdóttir, Ingibjörg Jónasdóttir og Hrafnhildur Ágústsdóttir, munu keppa fyrir hönd Íslands í sérstakri norrænni ballettkeppni í Svíþjóð dagana 21. og 22. maí, þar sem nemendur frá öllum ríkisreknum ballettskólum á Norðurlöndunum koma saman og keppa. MYNDATEXTI: Tignarlegir sigurvegarar hneigðu sig tígulega á sviði Borgarleikhússins.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar