Í Bankastræti

Jim Smart

Í Bankastræti

Kaupa Í körfu

Veðurguðirnir hafa verið landsmönnum hliðhollir að undanförnu, svo mjög að hægt er að tala um að vorveður ríki. Þegar litið er á almanakið sést þó að enn er hálfur annar mánuður eftir af vetrinum en honum lýkur ekki formlega fyrr en 21. apríl. Veðrið er vinsælt umræðuefni og ekki ólíklegt að veðurblíðan hafi borist í tal hjá þessum heiðursmönnum sem hittust á förnum vegi í Bankastræti. Ekki er útlit fyrir annað en áfram verði þokkalega hlýtt í veðri. Spáð er fremur hægri vestlægri átt en skúrir eða jafnvel él geta fallið hér og þar.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar