Rafrænt samfélag

Hafþór Hreiðarsson

Rafrænt samfélag

Kaupa Í körfu

Undirritaður hefur verið verkefnissamningur um rafrænt samfélag milli þriggja sveitarfélaga við Skjálfanda annars vegar og Byggðastofnunar hins vegar. Undirritun samningsins fór fram í sjóminjasafni Safnahússins á Húsavík. Fyrir hönd sveitarfélaganna þriggja sem að verkefninu standa skrifuðu undir þau Reinhard Reynis-son bæjarstjóri á Húsavík, Ólína Arnkelsdóttir oddviti Aðaldælahrepps og Jóhann Guðni Reynisson sveitarstjóri Þingeyjarsveitar. Fyrir hönd Byggðastofnunar skrifaði undir samninginn Aðalsteinn Þorsteinsson forstjóri hennar. Viðstaddir voru einnig fulltrúar samstarfsaðila verkefnisins, Örn Tryggvi Johnsen frá ANZA, Dagbjört Jónsdóttir frá Sparisjóði Þingeyinga og Friðfinnur Hermannsson frá Heilbrigðisstofnun Þingeyinga. Auk þeirra er Auðkenni hf. samstarfsaðili við framkvæmd verkefnisins og ráðgjöf hefur verið í höndum ADMON ehf. MYNDATEXTI: Reinhard Reynisson, Aðalsteinn Þorsteinsson, Ólína Arnkelsdóttir og Jóhann Guðni Reynisson undirrituðu samninginn í Sjóminjasafninu á Húsavík á dögunum. Að baki þeim standa Örn Tryggvi Johnsen, Dagbjört Jónsdóttir og Friðfinnur Hermannsson. Samningurinn nær til þriggja sveitarfélaga við Skjálfanda.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar