Sundfatatíska

Sundfatatíska

Kaupa Í körfu

TÍSKA Ef að líkum lætur verða þær blómlegar blómarósirnar í laugunum á hlýjum sumardögum í ár því nýjasta vor- og sumarlínan í sundfatatískunni kallar á blómabikiní í björtum og skærum sumarlitum ............ Allt leyfilegt í ár Tómas Torfason, framkvæmdastjóri heildverslunarinnar T.Ó., sem flytur inn Speedo-sundfatnað, tekur í sama streng og talar um bjarta og skæra liti í sundfatatísku sumarsins, en það er ekki svo ýkja langt síðan Speedo fór að feta sig inn í hátískuna meðfram framleiðslu á keppnissundfötum, sem í flestra huga er líklega svartur sundbolur með krossi í bakið og rönd á hliðinni. "Annars er allt leyfilegt í ár. Nú koma sterkt inn bikiní með blómamynstrum og hjá strákunum fara vinsældir sundbuxna vaxandi og því síðari sem þær eru því betra. Þetta er eins og að vera með troll í eftirdragi.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar