Þrjár Maríur
Kaupa Í körfu
Þrjár Maríur frumsýndar á Litla sviðinu GÓÐUR rómur var gerður að verkinu Þrjár Maríur eftir Sigurbjörgu Þrastardóttur þegar það var frumsýnt á laugardaginn á Litla sviði Borgarleikhússins. Þrjár Maríur fjallar um leikkonuna Maju sem er að æfa hlutverk Maríu Stúart í samnefndu leikriti eftir Schiller og býr sig undir að leika Maríu Callas í kvikmynd. Sjálf var hún skírð María eftir Maríu Magdalenu. Um leið og skyggnst er með augum Maju inn í heim þessara þriggja María verða áhorfendur vitni að sálarstríði hennar sjálfrar og djúpum tilvistarvanda. Vöknuðu meðal margra frumsýningargesta líflegar samræður um hinn flókna og margbreytilega heim sem Sigurbjörg laðar fram í leikritinu. Þótti Kristjana Skúladóttir, sem leikur aðalhlutverkið standa sig með prýði og var höfundinum klappað lof í lófa með rífandi fagnaðarlátum í enda sýningar. MYNDATEXTI: Sigurbjörgu Þrastardóttur var vel tekið í kjölfar sýningarinnar og höfðu margir sýningargestir sitthvað við hana að spjalla.
Arnþór Birkisson
Skoða myndirÁrni Sæberg
Skoða myndirÁsdís Ásgeirsdóttir
Skoða myndirEggert Jóhannesson
Skoða myndirEmilía Björg Björnsdóttir
Skoða myndirGolli / Kjartan Þorbjörnsson
Skoða myndirJúlíus Sigurjónsson
Skoða myndirKristinn Ingvarsson
Skoða myndirKristinn Magnússon
Skoða myndirÓlafur K. Magnússon
Skoða myndirÓmar Óskarsson
Skoða myndirRax / Ragnar Axelsson
Skoða myndirHelgi Sigurðsson
Skoða myndirÍvar Valgarðsson
Skoða myndirKristinn Pálsson
Skoða myndir