Æskulýðsdagur þjóðkirkjunnar

Gunnlaugur Árnason

Æskulýðsdagur þjóðkirkjunnar

Kaupa Í körfu

Æskulýðsdagur þjóðkirkjunnar var á sunnudaginn. Þess var minnst í Stykkishólmskirkju í fjölskyldumessu sem haldin var kl. 11. Á dagskrá voru fjölbreytt atriði sem flutt voru af börnum og unglingum. Tveir barnakórar sungu undir stjórn Sigrúnar Jónsdóttur, unglingar fluttu tónlistaratriði og krakkar úr kirkjuskólanum tóku fullan þátt í samkomunni með söng og látbragði. Þá lásu fermingarbörn út biblíunni. MYNDATEXTI: Á æskulýðsdegi: Gunnar Eiríkur Hauksson sóknarprestur leiðir sönginn sem flestir taka virkan þátt í.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar