Gullfoss

Rax / Ragnar Axelsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Gullfoss

Kaupa Í körfu

VEGIR hafa skemmst á Suður- og Vesturlandi í miklum vatnavöxtum vegna úrhellisins og þíðunnar undanfarna daga og mikil flóð í Hvítá í Árnessýslu settu um 800 hektara af ræktuðu landi á kaf og fólk varð innlyksa á bæjum á Auðsholtstorfunni svonefndu í Hrunamannahreppi. Vegurinn um Breiðabólstað í Dölum fór í sundur vegna vatnavaxta og var honum lokað um tíma í gær en vegasamband var komið á að nýju um sjöleytið í gærkvöldi. Þá skemmdist vegurinn um Svínadal í Dölum, en ekki þurfti að loka honum, og vegurinn í Vatnsnesi í Grímsnesi lokaðist vegna flóðanna. MYNDATEXTI: Gullfoss var í miklum ham í gær eftir vatnsveðrið undanfarna daga og hafði flætt yfir göngustíga.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar