Styrkir Fræðsluráðs Reykjavíkur

Styrkir Fræðsluráðs Reykjavíkur

Kaupa Í körfu

Fræðsluráð Reykjavíkur úthlutaði í gær fjörutíu styrkjum upp á rúmar þrjátíu og átta milljónir króna til ýmissa verkefna í grunnskólum borgarinnar. Stærstu styrkina fengu Myndlistaskólinn í Reykjavík, en styrkurinn rennur til reksturs skólans samkvæmt þjónustusamningi, Olweus-verkefnið, samvinnuverkefni fjölda skóla, Tónlistarskólinn í Landakoti og Samfok, vegna þjónustusamnings. Einnig fær verkefnið Bráðger börn stóra úthlutun síðar á árinu. MYNDATEXTI: Stefán Jón Hafstein, formaður Fræðsluráðs, afhendir styrki með aðstoð táknmálstúlks.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar