Kýrin Kríma

Atli Vigfússon

Kýrin Kríma

Kaupa Í körfu

Miklar endurbætur hafa verið gerðar á fjósinu á Lækjamóti í Þingeyjarsveit og nú er verið að leggja lokahönd á verkið sem felst í því að ljúka við innréttingar fyrir kvígur og kálfa. Segja má að búið sé að gjörbreyta allri aðstöðu fyrir gripina auk þess sem búið er að byggja við og gera mjaltabás þar sem 10 kýr eru mjólkaðar í einu. Það eru feðgarnir Sigurður Arnarson og Örn Sigurðsson sem standa að framkvæmdunum og hafa þeir nú breytt hlöðunni og gamla básafjósinu í nýtískulegt lausagöngufjós með öllum búnaði fyrir 50 kýr. MYNDATEXTI: Hún á sér merkilega sögu kýrin Kríma. Hún var nýfædd þegar Ólafur Ragnar Grímsson forseti og föruneyti komu fyrir nokkrum árum og skoðuðu mjaltabásinn á Fremstafelli sem er rétt við Lækjamót. Gestirnir voru í opinberri heimsókn í Suður-Þingeyjarsýslu og höfðu mjög gaman af kálfinum. Seinna keypti Sigurður kvíguna og hefur hún reynst mjög vel.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar