Borðtennis

Stefán Stefánsson

Borðtennis

Kaupa Í körfu

BORÐTENNIS er vaxandi íþróttagrein en unglingastarf er nú aðallega stundað í tveimur félögum á höfuðborgarsvæðinu, KR og Víkingi en vísir að deild hjá Stjörnunni í Garðabæ. Deildirnar eru öflugar og góðir þjálfarar sjá um að allir læri listina. Minna er um unglingastarf úti á landi en þó er lífleg deild rekin á Hvolsvelli undir nafni Dímons, í Reyholti og hjá Akri á Akureyri að ekki sé minnst á Flateyri. Auk þess hafa fatlaðir náð langt á mótum erlendis. Hjá KR æfa um 70 krakkar, sem er talsverð fjölgun frá í fyrra. Aðstaðan er góð í íþróttahúsi KR en samt þarf að skipta hópnum upp í 9 flokka til að geta sinnt krökkunum betur. Morgunblaðið brá sér í heimsókn og fylgdist með nokkrum af þessum hópum spreyta sig, ekki bara við keppni heldur alls kyns borðtennisleiki enda var fjörið mikið. Leiðin lá næst til Víkinga. Í fyrstu leit út fyrir að blaðamaður hefði villst af leið því í æfingasalnum var kökuát og kókdrykkja í hávegum höfð en við eftirgrennslan kom í ljós að tveir af drengjunum í félaginu áttu afmæli. Krakkarnir gerðu sér því glaðan dag og formaður deildarinnar mátti gjöra svo að borga fyrir herlegheitin en þau voru ekki án fórna því fyrst skyldi syngja - síðan kökur. Krakkarnir létu sig hafa það. MYNDATEXTI: Víkingar á æfingu. Í neðri röð frá vinstri Egill Karlsson, Daníel Björn Sigurbjörnsson, Jörgen Már Ágústsson, Hannes Örn Ívarsson og Árni E. Guðmundsson. Uppi á borðinu eru Ívar Jónsson, Lúðvík Þór Leósson, Einar Sigurðsson, Aron Bjarnason, Haukur Stefánsson, Hákon Arnar Jónsson, Róbert Eyþórsson, Jón Ragnar Guðnason, Rúnar Örn Birgisson og Halldór Arnþórsson.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar