Badminton

Stefán Stefánsson

Badminton

Kaupa Í körfu

STÓRÞJÓÐIR margar hefðu verið hreyknar ef þær hefðu séð hve mikið íslenskir grislingar lögðu á sig, í þeirra nafni, til að slá badmintonbolta yfir net á Akranesi - þegar hið árlega Grislingamót í badminton fór þar fram á dögunum. Samkvæmt áratuga venju er skipað í lið, eða öllu heldur lönd, sitt úr hverju félaginu og liðin síðan nefnd eftir einhverri þjóð, í þetta sinn voru merki Indlands, Danmerkur, Noregs, Svíþjóðar, Íslands og Kína hafin á loft. MYNDATEXTI: Indverjar með liðsstjórum. Í neðri röð frá vinstri er liðið, Þórkatla Dagný Þórarinsdóttir, Halldór Axel Axelsson, Steinn Þorkelsson, Pétur Sigurjónsson, Snorri Þórarinsson. Liðsstjórarnir Eva Sigurbjörg Þorkelsdóttir og Sigurrós Guðríðardóttir standa fyrir aftan.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar