Barnabolti í Egilshöll

Stefán Stefánsson

Barnabolti í Egilshöll

Kaupa Í körfu

Egilshöll iðaði af lífi á laugardaginn þegar rúmlega 500 stúlkur á aldrinum 6 til 16 ára þáðu boð Knattspyrnuráðs Reykjavíkur, KRR, og fjölmenntu til að taka þátt í ýmiss konar þrautum. Oft hefur fjörið verið mikið í hinu nýja knattspyrnuhúsi en jafnvel óhætt að fullyrða að einbeiting hafi verið meiri en oftast áður - það vantaði að vísu eitthvað á tæknina en það var rækilega bætt upp með áhuga - ekki síst að vera með og taka sprettinn á vellinum. MYNDATEXTI: Katrín Elfa Arnardóttir, 12 ára, var best í að halda bolta á lofti, 133 sinnum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar