VISA REY CUP 2003

Stefán Stefánsson

VISA REY CUP 2003

Kaupa Í körfu

FJÖR og fótbolti voru kjörorðin á alþjóðlegu VISA REY CUP-knattspyrnuhátíðinni, sem fram fór um víðan völl í Laugardalnum um síðustu helgi. Það hefði hiklaust verið hægt að bæta við fjölbreytni, frískleiki og fínasti fótbolti - hátíðin hefði fyllilega staðið undir því. Þá er ekki bara verið að spá í úrslit einstakra leikja heldur allt sem í boði var og þegar við bættist frábært veður og skipulagning, sniðin að þörfum keppenda, varð úr mikil hátíð. MYNDATEXTI. Hressar stúlkur úr 4. flokki Þróttar komu sér vel fyrir á efstu svölum. Með þeim á myndinni er Jón Þór sem þjónaði til borðs.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar