Baldvinn Þorsteinsson EA strandar

Ragnar Axelsson

Baldvinn Þorsteinsson EA strandar

Kaupa Í körfu

VONIR manna um að bjarga Baldvini Þorsteinssyni EA í gærkvöldi af strandstað í Skálafjöru urðu að engu vegna veðurs og er spáin fram undan ekki heldur hagstæð. Búist er við komu norsks dráttarskips til landsins fyrir hádegi á morgun, föstudag, og verður þá haldið áfram með björgunaraðgerðir og þess freistað að koma 2,5 km langri taug á milli Baldvins Þorsteinssonar og dráttarskipsins. MYNDATEXTI: Þyrla Landhelgisgæslunnar lætur tvo áhafnarmeðlimi Baldvins Þorsteinssonar síga um borð í gærdag þar sem þeir könnuðu ástand skipsins.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar