Gangaslagur í MR

Jim Smart

Gangaslagur í MR

Kaupa Í körfu

SJÖTTU bekkingar MR lögðu yngri bekkinga í hinum árlega og rótgróna gangaslag skólans sem fram fór í gær. Í gær tóku stúlkur í fyrsta skipti þátt í gangaslagnum og börðust þær vel þær fimm mínútur sem það tók sjöttu bekkinga að knýja fram sigur. Anna Heiða Gunnarsdóttir, nemandi í 6-R, var ein þeirra 20 kvenna sem slógust. "Þetta var rosalega gaman," sagði Anna. "Okkar hlutverk var að ryðja þeim sem voru í stiganum burtu og brjóta múrinn fyrir strákana. Síðan vorum við nokkurs konar fótstig fyrir þá, sem þeir nýttu sér til að hoppa yfir hópinn."

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar