Íslandsmót í tennis

Stefán Stefánsson

Íslandsmót í tennis

Kaupa Í körfu

Klukkustundar leik þurfti til að knýja fram úrslit á Íslandsmótinu í tennis sem fram fór í Sporthúsinu í Kópavogi um helgina. Þegar upp var staðið tókst Sigurlaugu Sigurðardóttur að verja titil sinn og Raj Bonifacius hafði sigur í karlaflokki en hann hefur einnig þjálfað flesta mótherja sína. Það var samt ekki annað að sjá en hann hefði miðlað einhverju til þeirra því þeir létu hann oft hafa mikið fyrir stigunum sínum. Myndatexti: Raj Bonifacius og Sigurlaug Sigurðardóttir urðu Íslandsmeistarar í tennis innanhúss á sunnudaginn.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar