Jóhann Axelsson

Jóhann Axelsson

Kaupa Í körfu

EINSTAKT kuldaþol Guðlaugs Friðþórssonar og þrek hans vakti athygli vísindamanna innan lands og utan. Dr. Jóhann Axelsson lífeðlisfræðingur og prófessor við Háskóla Íslands gerði rannsókn á Guðlaugi árið 1985. "Um leið og ég hafði gert þær rannsóknir sem hægt var að gera hér heima, fann ég á Guðlaugi að hann var tilbúinn að ganga aftur í gegnum þá þolraun að dvelja og vinna í rúmlega fimm gráða heitu vatni. Ég skrifaði prófessor William R. Keatinge, sem er í hópi virtustu og þekktustu sérfræðinga í heiminum sem fjalla um lághita og hefur gert ákaflega merkilegar rannsóknir á kuldaþoli mannslíkamans. Hann bauð okkur velkomna á rannsóknastofu sína við lífeðlisfræðideild Læknaskóla Lundúnaspítala," segir dr. Jóhann. MYNDATEXTI: Jóhann Axelsson.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar