Lexus LS 430 EXE

Rax / Ragnar Axelsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Lexus LS 430 EXE

Kaupa Í körfu

Árið 1990 setti Toyota á laggirnar lúxusbílamerkið sitt Lexus og frá fyrstu tíð hefur fyrirtækið framleitt bíla sem eru í samkeppni við þýsku gæðingana Mercedes-Benz, BMW og Audi. Fyrstu árin náði fyrirtækið góðri markaðsstöðu í Bandaríkjunum með því að bjóða þar lúxusbíla í mjög háum gæðaflokki á mun lægra verði en keppinautarnir. Þessa sömu leið fór Lexus þegar það byrjaði að herja á Evrópumarkað fyrir fáeinum árum en nú er verðið hvarvetna orðið meira í takt við keppinautana þótt ennþá megi sjá þess merki að verðsamkeppnin sé hörð. MYNDATEXTI: Lexus LS 430 er rúmlega fimm metra langur og í lúxusflokki.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar