Rútuslys

Davíð Pétursson

Rútuslys

Kaupa Í körfu

ÞRÍR tékkneskir ferðamenn liggja enn á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi eftir alvarlegt hópslys Skorradalsmegin efst á Geldingadraga í Borgarfirði á laugardagsmorgun. Ferðamennirnir voru ásamt 25 löndum sínum í rútu þegar hún mætti jeppa og valt í kjölfar þess að vegkantur gaf sig. Lýst er eftir jeppanum og ökumanni hans. MYNDATEXTI. Rútan rann um sautján metra á hliðinni áður en hún stöðvaðist á veginum. Glerbrotum rigndi yfir fólkið sem sumt slasaðist alvarlega og eru átta farþeganna enn á sjúkrahúsi.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar