Andlitskrem

Andlitskrem

Kaupa Í körfu

HEILSA AF hverju eru keyptir margir lítrar af húðkremum, oftast af konum sem vilja hindra hrukkumyndun? Þessar konur geta allt eins smurt sig með smjöri, að sögn húðsjúkdómalæknisins Olle Larkö, við Sahlgrenska sjúkrahúsið í Gautaborg. Aftenposten hefur eftir Larkö að í þessum húðkremum sé aðallega vatn, fita og ofnæmisvaldandi efni. Og nýjasta útspil kremaframleiðendanna er að bæta ýmsum jurtum út í framleiðsluna undir slagorðum á borð við "Náttúruleg fegurð". MYNDATEXTI: Húðkrem: Læknirinn segir að í kremunum sé aðallega vatn, fita og ofnæmisvaldandi efni.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar