Grunnskólinn í Grundarfirði

Grunnskólinn í Grundarfirði

Kaupa Í körfu

Frá því sl. haust hafa börnin í Grunnskólanum í Grundarfirði átt þess kost að kaupa heitan mat í hádeginu. Maturinn kemur frá veitingahúsinu Kaffi 59 alla daga vikunnar nema föstudaga en þann dag er skólinn hjá nemendum búinn um hádegisbil. Til þess að hægt væri að fara af stað með slíka þjónustu var gerð könnun meðal foreldra og þurftu 100 nemendur að vera ákveðnir í að notfæra sér hana til þess að þetta væri mögulegt. Að sögn Birnu Guðbjartsdóttur, starfsmanns á Kaffi 59, hefur börnunum líkað maturinn vel og nú eru um 140 nemendur af tæplega 200 sem eru áskrifendur að matnum og flestir kennarar og mest af starfsfólki skólans.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar