Rjóðrið - heimili fyrir langveik og fjölfötluð börn

Rjóðrið - heimili fyrir langveik og fjölfötluð börn

Kaupa Í körfu

Gleði sveif yfir vötnum við opnun Rjóðursins í Kópavogi, fyrsta hjúkrunarheimilis fyrir langveik börn á Íslandi, á laugardag. Í Rjóðrinu geta 10 langveik börn hverju sinni hlotið endurhæfingu og aðhlynningu, sem dvelja í 3-4 vikur í senn, en á Íslandi eru 30-40 börn sem þurfa á þjónustu af þessu tagi að halda. Myndatexti: Kári Stefánsson afhjúpaði stein með nafni heimilisins með aðstoð Ingibjargar Pálmadóttur, en nafngiftin er frá honum komin. Faðir Kára, Stefán Jónsson fréttamaður, ólst upp í húsi á Djúpavogi sem hét Rjóður.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar