Antonía Hevesi og Diddú

©Sverrir Vilhelmsson

Antonía Hevesi og Diddú

Kaupa Í körfu

ÞAÐ verða engin smálög sem þær Diddú og Antonía Hevesi ráðast í að flytja á hádegistónleikum í Hafnarborg kl. 12 á morgun. Tónleikarnir bera yfirskriftina Italia mia, - Ítalía mín, og þar syngur Diddú við píanóundirleik Antoníu þrjár af þekktustu aríum ítalskra óperubókmennta, Una voce poco fa, úr Rakaranum í Sevilla, Casta diva, úr Normu eftir Bellini og Estrano, úr La traviata eftir Verdi, - en auk þess eitt þekktasta sönglag Rossinis, La danza. MYNDATEXTI: Antonía Hevesi og Diddú koma fram í Hafnarborg í hádeginu á morgun.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar