Ægir Birgisson

Sigurður Mar Halldórsson

Ægir Birgisson

Kaupa Í körfu

"ÞAÐ er steindautt í dag og hefur reyndar ekki verið mjög gæfulegt að undanförnu," sagði Ægir Birgisson, skipstjóri á Steinunni SF frá Hornafirði, þegar Morgunblaðið sló á þráðinn um borð. Hann var að draga netin við Ingólfshöfða en sagði aflabrögðin afar dræm þann daginn en hafði fengið ágætan afla á sama stað daginn áður. MYNDATEXTI: Dagamunur á aflabrögðunum Ægir Birgisson, skipstjóri á Steinunni SF frá Hornafirði.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar