Grease í Íþróttahöllinni á Akureyri

Kristján Kristjánsson

Grease í Íþróttahöllinni á Akureyri

Kaupa Í körfu

Söngleikurinn Grease sýndur á Akureyri á sunnudag ÞAÐ var handagangur í öskjunni í Íþróttahöllinni á Akureyri í gærkvöld en þá hófst vinna að setja upp 310 fermetra svið fyrir sýningu á söngleiknum Grease á sunnudag. Sýningarnar á sunnudag verða tvær, kl. 15 og 19 og er löngu uppselt á fyrri sýninguna en enn eru 350-400 miðar eftir á seinni sýninguna. Alls eru sæti fyrir 1.750 manns á hvorri sýningu. Mikil eftirvænting ríkir á Akureyri og nágrenni og stórir hópar víðs vegar af Norðurlandi eru á leið til sjá sýninguna í Höllinni, auk heimamanna. MYNDATEXTI: Um 20 manns unnu við að setja upp sviðið fyrir sýningarnar í Íþróttahöllinni á Akureyri á sunnudag og stóð sú vinna fram á morgun.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar