Börn á skíðum

Kristján Kristjánsson

Börn á skíðum

Kaupa Í körfu

Líf og fjör mun einkenna Hlíðarfjall við Akureyri á næstu dögum, en páskarnir eru framundan og þá bregða margir sér á skíði eða snjóbretti. Strax í þessari viku byrja starfsmenn að merkja aukna umferð fólks á skíðasvæðið, þeir sem taka fríið snemma byrja að streyma á svæðið nú fyrir helgi. Og allir skemmta sér vel við að renna sér niður troðnar brautir Hlíðarfjalls frá morgni til kvölds MYNDATEXTI: Hvíla lúin bein. Þessi myndarlegi hópur var að ljúka þátttöku á námskeiði í Skíðaskólanum og krakkarnir notuðu tækifærið til að hvíla sig aðeins við skíðahótelið áður en haldið var heim.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar