Bíll úr Hvítá

Sigurður Jónsson

Bíll úr Hvítá

Kaupa Í körfu

TALIÐ er nær fullvíst að bílflakið sem fannst í Hvítá í Árnessýslu síðastliðinn mánudag sé af gerðinni Suzuki Swift sem lenti í ánni við Brúarhlöð í 2. ágúst 2002. Tveir ungir menn voru í bifreiðinni og tókst öðrum þeirra að bjarga sér á land við illan leik en félagi hans, Pálmi Þórisson, var talinn af nokkrum dögum eftir slysið og hefur aldrei fundist. Að sögn lögreglunnar hafa fleiri hlutar bílsins að því er talið er fundist í ánni að undanförnu og er málið rannsakað hjá lögreglunni.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar