Opið hús í Björgunarmiðstöðinni

Júlíus Sigurjónsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Opið hús í Björgunarmiðstöðinni

Kaupa Í körfu

Opið hús var í Björgunarmiðstöðinni Skógarhlíð á laugardaginn en þar eru nú til húsa höfuðstöðvar Slysavarnafélagsins Landsbjargar, Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins, Fjarskiptamiðstöðvar Ríkislögreglustjóra, Neyðarlínu og Almannavarna- og umferðardeildar Ríkislögreglustjóra. Fjöldi manns notaði tækifærið í blíðviðrinu og lagði leið sína í Skógarhlíðina og kynnti sér starfsemina þar. Greinilegt var að yngstu gestirnir kunnu vel að meta að fá að fara í ferð upp í háloftin í körfubílum Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar