Sigurlið Drangs í körfubolta

Jónas Erlendsson

Sigurlið Drangs í körfubolta

Kaupa Í körfu

ÞAÐ ríkti mikil gleði í íþróttahúsinu í Vík í Mýrdal á sunnudaginn þegar heimamenn í Drangi tryggðu sér sæti í 1. deild karla í körfuknattleik. Drangur sendi lið til keppni í 2. deild í fyrsta skipti í vetur, vann sinn riðil í undankeppninni, og sigraði síðan í öllum leikjum sínum í úrslitakeppninni sem fram fór í Vík og á Kirkjubæjarklaustri um helgina. MYNDATEXTI: Meistaralið Drangs í 2. deild. Aftari röð frá vinstri: Ágúst Kristinsson, Sigurður Þór Þórhallsson, Magnús Orri Sæmundsson, Björn Ægir Hjörleifsson þjálfari, Óðinn Gíslason, Oddsteinn Árnason, Björgvin Jóhannesson. Fremri röð frá vinstri: Lukkudýrið fýllinn, Steinar Orri Sigurðsson, Þorbergur Atli Sigurgeirsson, Steinar Þórhallsson, Pálmi Kristjánsson, Davíð Agnarsson, Jóhann Fannar Guðjónsson og liggjandi fyrir framan er Kjartan Kárason.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar