Mínus á Gauknum

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Mínus á Gauknum

Kaupa Í körfu

BÖRN og fullorðnir komu saman á Gauki á Stöng í gær til að hlýða á síðustu tónleika Mínuss hér á landi í bili en þeir halda von bráðar í tónleikaferðalag til Bretlands og Írlands. Af því tilefni efndi hljómsveitin til tónleika fyrir alla aldurshópa á Gauknum. Uppátækið fell vel í kramið hjá aðdáendum en Mínusmenn höfðu hvatt unga fólkið til að "draga mömmu og pabba með til þess að komast í samband við rokkskrímslið í sér", eins og sagði í fréttatilkynningu frá hljómsveitinni. Tilmælin virðast hafa verið tekin alvarlega og góð mæting var á tónleikana.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar