Tryggvi Óskarsson á Þverá - Drottning og Prinsessa

Atli Vigfússon

Tryggvi Óskarsson á Þverá - Drottning og Prinsessa

Kaupa Í körfu

Fyrirmálslömb Laxamýri | Vorlegt varð í fjárhúsunum hjá Tryggva Óskarssyni bónda á Þverá í Reykjahverfi þegar ein ærin bar tveimur gimbrum án þess að nokkur vissi að hún væri komin að burði. Þær hafa verið nefndar Drottning og Prinsessa og verða líklega stórar í haust ef allt gengur vel. Móðir þeirra var sjálf fyrirmálslamb svo eitthvað er það í ættinni að vilja bera snemma. Á myndinni er Tryggvi á Þverá með gimrarnar sem eru að virða fyrir sér heiminn í fyrsta skipti frá jafn góðum útsýnisstað.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar